Hægt er að sækja um reikningsviðskipti hjá Agli Árnasyni.
Hér má nálgast eyðublað sem fylla skal út og afhenta á skrifstofu Egils Árnasonar hf. Suðurlandsbraut 20. Reikningsviðskipti eru háð reikingsskilmálum sem finna má hér fyrir neðan. Umsóknum er svarað skriflega innan 5 virkra daga.
Viðskiptaskilmálar Parketval ehf / Egils Árnasonar
Verð, tilboð og pantanir.
Verð á vöru er samkvæmt gildandi verðskrá Egils Árnasonar á hverjum tíma. Egill Árnason áskilur sér rétt til að gera breytingar á verðskránni án fyrirvara, með hliðsjón af þróun gengis, heimsmarkaðsverðs á hráefnum og verðlags á hverjum tíma.
Tilboðsverð til einstakra viðskiptavina miðast við staðgreiðslu vörunnar. Tilboð gilda í 20 daga frá dagsetningu þeirra.
Kaupsamningur um vöru telst vera kominn á við staðfestingu pöntunar.
Við staðfestingu pöntunar greiða viðskiptavinir 20% af kaupverði. Þegar um er að ræða reikningsviðskipti eru 20% af kaupverðinu skuldfærð á viðskiptareikning viðskiptavinar.
Þegar um er að ræða staðgreiðsluviðskipti er gjalddagi eftirstöðva kaupverðs vörunnar við afhendingu hennar .
Þegar um er að ræða reikningsviðskipti skuldfærast eftirstöðvar kaupverðs vörunnar á viðskiptareikning viðskiptavinar við afhendingu hennar.
Afhending vöru, heimsending, geymslugjald o.fl.
Vörur eru afhentar af lager Egils Árnasonar á Suðurlandsbraut 20. Viðskiptavinir geta farið fram á að fá vöruna heimsenda gegn gjaldi samkvæmt gjaldskrá hverju sinni. Áhætta og ábyrgð á vörum flyst á hendur viðskiptavini við afhendingu.
Áætlaðs afhendingartíma vöru er getið á tilboðsblöðum og pöntunarstaðfestingum. Egill Árnason tilkynnir viðskiptavinum sérstaklega um hvenær vara er tilbúiin til afhendingar. Afhendingartímar eru ávalt áætlaðir og geta dregis vegna utanaðkomandi áhrifa, s.s. vegna framleiðslugetu birgja, flutninga o.fl. Egill Árnason er undir engum skringumstæðum ábyrgur fyrir því tjóni sem að dráttur á afhendingu getur valdið.
Seljandi ber ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem verða kann vegna seinkunar á afhendingu eða rangrar afhendingar og/eða ef vara kemur gölluð frá erlendum birgjum. Seljandi ber ennfremur ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem má rekja til aðstæðna (force majeure) sem seljandi getur ekki ráðið við þ.á.m. verkföll, verkbönn, eldsvoða, stríðsástand, skipsskaða eða aðrar sambærilegar aðstæður.
Viðskiptavinir skulu sækja vöru á lager eða óska eftir heimsendingu vörunnar eigi síðar en 7 dögum eftir að þeim hefur borist tilkynning um að varan sé tilbúin til afhendingar. Hafi viðskiptavinur ekki sótt vöru að þeim tíma liðnum flyst áhætta af vörunni yfir á viðskiptavin og verður um leið heimilt að rukka geymslugjald. Agli Árnasyni er heimilt að krefja hann um gjald vegna geymslu vörunnar samkvæmt gjaldskrá en skal það þó ávalt tilkynnt eiganda vörunnar skriflega áður en gjaldtaka hefst.
Vara er ætíð send á ábyrgð og kostnað kaupanda.
Reikningsviðskipti
Viðskiptavinir geta óskað eftir því að stofna til reikningsviðskipta hjá Agli Árnasyni með því að fylla út umsóknareyðublað sem finna má á heimasíðun okkar, www.egillarnason.is. Egill Árnason áskilur sér fullan rétt til að synja umsóknum um reikningsviðskipti.
Viðskiptavinir skulu tilkynna Agli Árnasyni skriflega um þá aðila sem heimilt er að taka út vörur í viðskiptareikning þeirra og gera viðvart um breytingar á úttektaraðilum. Vanræki viðskiptavinur að tilkynna um úttektaraðila eru allar úttektir á ábyrgð viðskiptavinar.
Gjalddagi úttekta í reikningsviðskiptum er dagsetning reiknings og eindagi er 15 dögum síðar eða eins og fram kemur á reikningi. Dragist greiðsla fram yfir eindaga verða dráttarvextir reiknaðir frá og með gjalddaga fram til greiðsludags samkvæmt ákvæðum III. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Dragist greiðsla lengur en 30 daga frá gjalddaga er lokað á úttektarheimild viðskiptavinar. Viðskiptavinir í reikningsviðskiptum heimila Agli Árnasyni að tilkynna vanskil, sem varað afa lengur en 30 daga til Lánstrausts hf. til skráningar á vanskilaskrá.
Þegar samið hefur verið um að vara skuli afhent í áföngum og greiðsla hefur ekki borist vegna fyrri afhendinga stöðvast frekari afhendingar af hálfu seljanda þar til trygging fyrir greiðslu hefur verið innt af hendi. Sama gildir ef samið hefur verið um innborganir vegna vörukaupa og kaupandi stendur ekki við samkomulag þar að lútandi.
Seljandi tekur ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem kaupandi kann að verða fyrir vegna tafa á afhendingu sbr. ofangr.
Egill Árnason sendir viðskiptavinum greiðsluseðla vegna viðskiptareikninga. Viðskiptavinir skulu gera athugasemdir við stöðu viðskiptareiknings innan 15 daga frá dagsetningu greiðsluseðils. Berist athugasemdir ekki innan þess tíma telst skuldastaða á viðskiptareikningi samþykkt.
Viðskiptavinir Egils Árnasonar í reikningsviðskiptum greiða greiðsluseðilsgjald. Þá greiða viðskiptavinir allan innheimtukostnað komi til vanskila.
Séu greiðsluseðlar greiddir eftir eindaga er Agli Árnasyni heimilt að fella niður alla umsamda afslætti og krefja viðskiptavin um fullt verð vörunnar.
Skilaréttur
Viðskiptavinum er heimilt að skila vörum í 30 daga frá afhendingu þeirra gegn framvísun kvittunar eða annarrar sambærilegrar sönnunar fyrir viðskiptunum og fá í stað þeirra inneignarnótu hjá Agli Árnasyni. Vörum skal skilað á lager Egils Árnasonar. Aðeins er tekið á móti vörum í upprunalegum og lokuðum umbúðum.
Sérpöntuðum vörum og vörum sem skemmst hafa í meðförum viðskiptavinar fæst ekki skilað.
Viðskiptavinur skal skoða vöruna gaumgæfilega um leið og afhending hefur farið fram og gera þegar viðvart vilji hann leggja fram kvörtun vegna galla.
Ef ástæður þess að vöru er skilað verða ekki raktar til mistaka seljanda og/eða galla á vörunni áskilur fyrirtækið sér rétt til að draga allan kostnað sem af þessu hlýst frá inneign kaupanda.
Ábyrgð
Gildistími ábyrgðar samkvæmt reikningi er í eitt ár frá dagsetningu hans. Undantekning frá því er þegar framleiðendur veita lengri ábyrgð en lögboðið er. Ætið skal fylgja ábyrgðarskilmálum framleiðanda þegar um er að ræða ábyrgð sem er lengri en 2 ár. Komi í ljós framleiðslu- og/eða efnisgalli á ábyrgðartímabilinu takmarkast ábyrgð seljanda við kostnað við endurbætur á hinni gölluðu vöru. ekki er tekin ábyrgð á kostnaði við vinnu eða flutning vörunnar. Kaupandi skal kosta og sjá um að koma vöru til seljanda.
Seljandi ber aldrei ábyrgð á afleiddu tjóni vegna galla eða bilunar á seldri vöru. Bótafjárhæð takmarkast ætíð við söluverð viðkomandi vöru án vsk. Seljandi undanþiggur sig að öðru leyti ábyrgð á seldum vörum að því marki sem lög heimila.
Egill Árnason ber enga ábyrgð á óbeinu tjóni sem kann að hljótast af notkun á vörunni. Eigi bilun, skemmdir eða eftir atvikum eyðilegging á vöru rætur að rekja til rangrar og/eða slæmrar meðferðar kaupanda (eða aðila sem hann ber ábyrgð á) ber kaupandi ábyrgð á greiðslu viðgerðarkostnaðar.
Ábyrgðin fellur úr gildi ef ekki hefur verið farið að fyrirmælum framleiðandans varðandi öryggismál, uppsetningu og stýrt viðhald samanber leiðbeiningar í handbók. Ábyrgð gildir ekki vegna eðlilegs slits eða vegna skemmda af völdum veðurs.
Verði ágreiningur um það hvort varan hafi valdið tjóni fer um ábyrgð seljanda eftir lögum nr. 25/1991 um skaðsemisábyrgð. Seljandi undanþiggur sig ábyrgð af slíku tjóni að því marki sem þau lög heimila.
Reikningurinn gildir sem ábyrgðarskírteini. Sé um að ræða neytendakaup í skilningi laga nr. 48/2003 ganga ákvæði þeirra laga framar viðskiptaskilmálum þessum ef þau stangast á.
Söluveð
Seljandi heldur söluveði, samkvæmt III. kafla, undirkafla G, laga nr. 75/1997 um samningsveð, í seldri vöru eins og hún er skilgreind í reikningi þar til kaupverð vörunnar samkvæmt sölureikningi hefur verið að fullu greitt. Sé greitt með víxlum, skuldabréfum og/eða ávísunum helst söluveðið þar til skuld samkvæmt slíku skjali er greidd.
.