utanh.flisar

Utanhússflísar

Egill Árnason hf býður fjölda möguleika í flísaklæðningum á hús. Flísar hafa reynst sérlega vel til klæðninga og hafa möguleikar í stærðum og útfærslum aukist jafnt og þétt.

Apavisa og Ariostea
Frábært úrval flísa sem hafa verið frostprófaðar af RB og eru nú þegar á fjölmörgum byggingum hér á landi. Fáanlegar í fjölmörgum stærðum ásamt úrvali í áferð.

Kale
Vandaðar postulínsflísar í flestum algengustu stærðunum og er boðið upp á ótrúlegan fjölda litamöguleika. Flísarnar eru framleiddar úr náttúruefnum og pressaðar og brenndar við 1300° hita. Þessi aðferð gefur sérstaklega sterka slitáferð og litla rakadrægni. Notaðar í hefðbundnar klemmufestingar eða lím. Fostprófaðar af RB.

Mustang.  Þessar flísar hafa verið notaðar á hús hér í nokkur ár en við bjóðum einnig Black Rain basalt granít sem hægt er að fá í sérstærðum en þær eru samskonar flísar og sjá á KPMG húsinu.

Undirkerfi

Við bjóðum undirkerfi fyrir klæðningar; veggvinkla, leiðara, klemmur og Paneltak lím (frostprófað af RB).