Sérvörudeild
Egill Árnason býður upp á fjölmarga vöruflokka í sérverkefnadeild.
Kerfisloft
Kerfisveggi
Íþróttagólf
Utanhússklæðningar (Flísar)
Sérsmíði á innihurðum
Sértilboð í stærri verk og samskipti við verktaka
Sérvörudeild Egils Árnasonar tekur að sér að mynda heildarlausnir í utanhússklæðningum fyrir stærri og smærri fyrirtæki. Í því samhengi má nefna höfuðstöðvar Olís, Skugga 101 Skúlagötu og höfuðstöðvar KPMG Borgartúni.
Á sama hátt er einnig boðið upp á svipaðar lausnir í innanhússinnréttingum. Þar má nefna sem dæmi granítsteininn sem prýðir öll gólf í glæsilegri byggingu Perlunnar í Öskjuhlíðinni og kerfiveggi og hurðir í höfuðstöðvum KPMG Borgartúni. Sjáum einnig um veggi í höfuðstöðvum Price Waterhouse Coopers og gólfefni í Íslenskri erfðagreiningu. Egill Árnason klæðir fjölmörg íþróttagólf á landinu.
Þess má geta að fyrirtækið gerir sér far um að eiga gott og náið samstarf við arkitekta og stærstu byggingaverktaka landsins með parket, hurðir og flísar. Reynt er að uppfylla allar þeirra kröfur með greinargóðri upplýsingaráðgjöf og aðstoð við efnisval.
Egill Árnason hefur bætt við vöruúrvalið og hjá okkur finnur þú nú kerfisloft, kerfisveggi auk sérlausna í flísum fyrir sundlaugar. Meðal annarra vöruflokka má nefna eru flísar og náttúrusteinn til utanhússklæðninga og upphengikerfi fyrir bæði flísar og flestar aðrar gerðir utanhússklæðninga.
Hafðu samband við sölumann í síma 595-0500 eða með tölvupósti á ae@egillarnason.is






