parket02

Viðhald, lökk, olíur og lagning

Enginn veit meira um viðargólf og rétta meðhöndlun þeirra en JUNCKERS. Þess vegna getur þú treyst því að ná bestum árangri með því að nota yfirborðsefni á gólfið frá Junckers sem Egill Árnason flytur inn. Junckers hefur yfir 50 ára reynslu af framleiðslu á lakki og olíu og nú getur fyrirtækið boðið viðskiptavinum sínum upp á öll þau efni sem þarf til yfirborðsmeðhöndlunar og viðhalds og uppfyllt ströngustu kröfur um áferð gólfsins. Vöruþróunardeild Junckers er stöðugt að prófa nýjar vörur og er það önnur ástæða þess að vinsældir hinna vel þekktu og endingargóðu yfirborðsefna þeirra dvína aldrei.

Frá JUNCKERS má einnig finna mikið úrval af olíum og viðhaldsefnum fyrir olíuborið parket. Sölumenn geta gefið góða ráðleggingu um efnisval frá JUNCKERS.

Við mælum með að notuð sé Junckers yfirborðsolía í reglulegt viðhald á olíubornum gólfum, en ef gólfið hefur ekki verið olíuborið í langan tíma þá skal nota Junckers Rustic Olíu.

Junckers býður nú einnig upp á vörulínu fyrir viðarhúsgögn og sólpalla en nánari upplýsingar má finna með því að smella hér.


Helstu kostir yfirborðsefnanna frá JUNCKERS eru að þau eru auðveld í notkun og er vöruúrval sérstaklega gott. Junckers hefur aðlagað vöruúrval sitt þannig að hver og einn geti fundið vörur sem henta með tilliti til umhverfisreglugerða, veðufars, hefðar og verklags á hverjum stað.

Junckers