parket02

Viðhald, lökk, olíur og lagning

Árið 1941 fékk Gustaf Kährs einkaleyfi á lagskiptum parketborðum (krosslímt, fljótandi parket) sem var fyrsta lagskipta parketgólfefni í heimi. Með þessari framleiðsluaðferð urðu gólfin endingarbetri en einnig fólst í þessu ný notkun hráefna þar sem bættri nýtingu náttúruauðlinda var gefinn meiri gaumur.


Nú er komið að næstu stórstígu framförunum í sögu gólfefna. Woodloc, viðarlæsing Kährs. Með Woodloc viðarlæsingum læsast parketborðin saman þannig að samskeytin eru nánast ósýnileg. Borðin raðast sjálfkrafa saman án þess að nota þurfi lím. Woodloc viðarlæsingarnar tengja borðin saman með fullkomnum hætti þannig að samskeytin þola mikið álag og haldast jafnlengi og gólfið endist. Þar sem borðin eru lögð án líms er auðvelt að skilja þau í sundur og leggja þau aftur annarsstaðar.