Viðhald, lökk, olíur og lagning
Gegnheilt parket
Gegnheilt parket er sérlega fallegt og endingargott gólfefni. Ákveðin tilfinning fylgir því að vera með gegnheilt parket á gólfinu. Það er lítið mál að pússa gólfið og gera það eins og nýtt en mælt er með að það sé gert með nokkurra ára millibili. Þú getur breytt um áferð og lit í hvert skipti og notið nýjungarinnar til hins ítrasta. Gegnheila parketið sem við seljum er þurrkað sérstaklega fyrir íslenskar aðstæður með rakainnihaldi 8% +/- 2%. Rakastigið í gegnheilu parketi er mjög mikilvægt því hreyfingin á timbri getur verið mikil. Áður en gegnheilt parket er lagt er margt sem huga þarf að. Leitaðu upplýsinga hjá fagmönnum áður en þú hefst handa.
Þú getur sótt frekari upplýsingar um lögn á gegnheilu parketi á þessum slóðum :
Junckers
Graf Brothers Flooring, Inc
Taylor Lumber
Plankaparket
Þegar talað er um plankaparket er átt við planka sem eru a.m.k. 12,7 cm breiðir. Gólfborðin eru ýmist í fallandi lengdum eða föstum og eru 13-22 mm þykk. Í þessum flokki er vöruúrvalið með eindæmum en þessi gólfefni eru hálfgert tískufyrirbrigði þessa stundina.
Hérna áður fyrr þegar talað var um plankaparket var eingöngu átt við gegnheila planka. Nú nýlega hafa framleiðendur okkar byrjað á því að framleiða krosslímd, breið borð sem hægt er að leggja fljótandi. Við höfum kosið að kalla krosslímd, breið borð sem hægt að leggja fljótandi; plankaparket.
Hreyfingin á gegnheilum plankagólfum getur verið mikil en hún er u.þ.b. helmingi minni á krosslímda plankaparketinu. Því ætti fólk að hugsa sig vandlega um áður en fjárfest er í gólfefnum eins og þessum. Ástæðan er einföld en það er nánast enginn sjáanlegur munur á gegnheilum plankagólfum og krosslímdum plankagólfum.
Fljótandi parket
Fljótandi parket er krosslímt/lagskipt parket og er yfirleitt í 3 lögum.
1. Yfirborðið er 4 mm viðarspónlag
2. Millilag úr krossvið eða furu 8-9 mm
3. Botn úr Furu 2-3 mm
Framleiðendurnir sem við höfum kosið að flytja fljótandi parketið inn frá eru Baltic Wood, Karelia og Schwarzer. Allir framleiðendurnir eiga það sameiginlegt að afgreiða efnið sitt með rakastigi 7% +/- 1,5% sem tryggir að efnið henti híbýlum hér á Íslandi.
Baltic Wood
Karelia
Schwarcher
Balterio parket
Balterio býður upp á mikið úrval af sérlega slitsterku gólfefni til notkunar fyrir heimilið sem og fyrir skrifstofuhúsnæði. Skoðaðu ótrúlega vörulínu af plankagólfum sem endast og endast.

