Harðparket
Fegurðin kemur innan frá er spakmæli sem á vel við þegar rætt er um Balterio gólf vegna þess að það er miklu meira í boði en það sem augað greinir þegar Balterio gólf er annars vegar. Balterio hefur ekki eingöngu eina bestu slit og rispuvörn á markaðinum heldur er útlit og áferð framúrskarandi. Plankar sem að jafnast á við bestu verk náttúrunnar en slitþol sem bara er hægt að dreyma um. Hægt er að fá undirlag á Balterio gólfefnin sem dempar niður hljóð um allt að 24db.
Einstaklega sterkt yfirborð Balterio gólfsins býður upp á mikinn umgang og viðhaldið er svo til ekkert þannig að það gefur fleiri tækifæri til þess að lifa lífinu lifandi. Þessir einstöku eiginleikar þýðir einfaldlega að við ábyrgjumst það að þú eignist fallegt gólf sem kemur til með að endast í mörg ár, jafnvel kynslóðir.
Balterio er framleitt samkvæmt ISO 9001 staðlinum. Skoðaðu algengar spurningar um Balterio hér að neðan.
Litirnir sem við eigum á lager eru hér að neðan, en að sjálfsögðu getum við sérpantað allar tegundir úr vörulínu Balterio. Smelltu á myndina til að sjá fulla stærð.
Eik Crafted
Eik Barn
Eik Cottage
Eik Bleached

Eik Chateu
Hnota
Algengar spurningar um Balterio harðparketið.
Get ég notað Balterio á gólf með gólfhita?
Balterio harðparketið er hægt að nota án vandræða á gólf sem eru hituð með vatnshita gegn því að rörin séu í það minnsta 3cm undir yfirborði gólfsins og að hitastýring tryggi að hitinn fari ekki yfir 28°. Við ráðleggjum að frekari ráða sé leitað í lagningarleiðbeiningum eða hjá sölusérfræðingum Egils Árnasonar.
Get ég notað Balterio gólf á bað eða önnur blautrými?
Balterio getur þú ekki notað á blautrými þrátt fyrir að efnið þoli yfirborðsraka mjög vel. Viðvarandi raki og bleyta gerir það að verkum að plankarnir bólgna upp og skemmast.
Hvernig þríf ég Balterio harðparketið?
Í verslun okkar finnur þú úrval hreinsiefna sem eru sérframleidd til að viðhalda harðparketi. Nánari upplýsingar um notkun má finna hjá sölumönnum Egils Árnasonar.
Í hvaða átt á ég að láta liggja í efninu þegar ég legg það á gólfið?
Við mælum með að efnið sé lagt í sömu stefnu og helsti náttúrulegi ljósgjafinn. Sjá nánar á teikningum.



Eru Balterio gólfin rispufrí ?
Balterio harðparketið er til í fjölmörgum útgáfum og um leið með mismunandi rispuþol. Við eigum harðparket allt frá almennri heimilisnotkun til mikillar verslunar og iðnaðarnotkunar. ( frá Class31/AC3 til Class 33/AC5)









