Gegnheilt parket
Gegnheilt parket er sérlega fallegt og endingargott gólfefni ef það er keypt frá viðurkenndum framleiðanda. Ákveðin tilfinning fylgir því að vera með gegnheilt parket á gólfinu. Það er lítið mál að pússa gólfið og gera það eins og nýtt en mælt er með að það sé gert með nokkurra ára millibili. Þú getur breytt um áferð og lit í hvert skipti og notið nýjungarinnar til hins ýtrasta. Egill Árnason býður eingöngu upp á hágæða gegnheil gólfefni frá Junkcers í Danmörku. Hægt er að fá gólfin í fjölmörgum mismunandi viðartegundum og með mismunandi grófri flokkun, allt eftir hvaða útliti þú leitar að.
Gólfin frá Junckers koma í tveimur þykktum, annars vegar 14mm og hins vegar 22mm þykk. í öllum tilfellum eru þau fullþurkuð og tilbúin til undir lögn. Hér að neðan er eingöngu farið yfir gegnheilt Eikarparket, en við getum að sjálfsögðu útvegað allar tegundir t.d. Ask, Hlyn, Beyki, Merbau, Jatoba og fjölmargar fleiri.

Classic er sá flokkur sem er mest valinn og hefur því minnst að kvistum og öðrum litbrigðum. Dæmi um Eik Classik má sjá hér að ofan, en athugið að myndin gefur eingöngu hugmynd hvernig flokkunin er þar sem um er að ræða náttúrlegt efni.

Harmony er flokkur sem að hefur að geyma kvisti og litbrigði eins og þau gerast best frá náttúrunnar hendi. Eins og nafnið gefur til kynna samsvarar efnið sér einstaklega vel Það er þó búið að velja út stærstu kvistina og mest áberandi litamuninn. Dæmi um Eik Harmonyy má sjá hér að ofan, en athugið að myndin gefur eingöngu hugmynd hvernig flokkunin er þar sem um er að ræða náttúrlegt efni.

Variation er sá flokkur sem er með miklum kvistum og í raun tekinn beint frá náttúrunnar hendi. Efnið er mikið kvistað og hefur einnig litablöndu sem gefur mikin svip. Dæmi um Eik Variation má sjá hér að ofan, en athugið að myndin gefur eingöngu hugmynd hvernig flokkunin er þar sem um er að ræða náttúrlegt efni.
Eins og allt efni frá Junckers þá er hægt að fá fjórar mismunandi yfirborðsáferðir,
Lakkað
Matt lakkað
Olíuborið
Ómeðhöndlað (kemur forslípað)
Fyrir þá sem vilja gegnheila planka bjóðum við einnig upp á gott úrval frá Junkcers. Gegnheila plankaparketið frá Junckers kemur í 20,5mm þykkum borðum og er 18cm breitt.
Í gegnheilum plönkum eru flokkarnir tveir, Eik Harmony og Eik Variation

Eik Harmony í plönkum er líkt og stafaparketið með nokkuð af kvistum en gott jafnvægi í litasamsetningu.


