Fljótandi parket
Nú bjóðum við upp á lagningarleiðbeiningar með Baltic Wood parketinu.

Þú finnur leiðbeiningarnar hér.
Ef þú ert í einhverjum vafa hvaða tegund af parketi þú átt að kaupa, þá minnum við á að Baltic Wood býður 30 ára ábyrgð af öllu parketi.
Hafðu samband við sölumenn okkar ef að einhverjar spurningar vakna varðandi lagningu, viðhald eða almenna umgengni um parket.
Fljótandi parket er krosslímt/lagskipt parket í 3 lögum.
1. Yfirborðið er með 3-4 mm viðarspónlagi
2. Millilag úr furu eða annari tegund harðviðar 8-9 mm
3. Botn úr furutré 2-3 mm

Okkar helstu birgjar á fljótandi, krosslímdu parketi eru Fetim, Hamberger og Baltic Wood
Fetim framleiðandinn frá Hollandi einbeitir sér að framleiðslu á krosslímdum plankagólfum, 15-20 mm þykkum, sem hafa notið mikilla vinsælda hér á landi. Ef þú ert að leita að gólfefni sem lítur út fyrir að hafa verið lagt fyrir langa löngu og fólk virkilega tekur eftir ættir þú að líta á það sem við höfum upp á að bjóða frá þessum framleiðanda.
Hamberber Gmbh er þýskur framleiðandi sem að býður upp á frábært úrval af hágæða parketi með viðarsmellu. Það skemmir ekki fyrir að þetta efni flytjum við inn í miklu magni og getum því boðið á frábærum verðum.
Nýlega höfum við hafið innflutning frá framleiðandanum Baltic Wood. Baltic Wood er stærsti framleiðandinn í Póllandi á krosslímdu fljótandi parketi. Tækin sem Baltic Wood nota til framleiðslu á eru af nýjustu gerð og framleiðslan því afar góð auk þess er verðið hagstætt.
Við bjóðum upp á þrjár tegundir frá Baltic Wood í dag og eru allar gerðir að sjálfsögðu með furu viðarlæsingu sem að frábært er að leggja

Eik Unique

Frábært eikarparket sem að hefur líflega fjölbreytni og mikin "karakter". Þetta efni kemur í 20,9cm borðum og er einstaklega þægilegt að leggja það. Að sjálfsögðu fylgir því 30 ára ábyrgð frá framleiðanda. Hafðu samband í síma 595-0500 595-0500 595-0500 595-0500 595-0500 595-0500 595-0500 595-0500 og við sendum þér prufur í pósti eða líttu við í verslun okkar.
Beyki Comfort
Valið beyki sem að er í senn með ljóst yfirbragð og með mjúka tóna sem leynast í beyki viðnum. Þetta efni kemur í 18 cm borðum og að sjálfsögðu með viðarlæsingu. Hafðu samband og við sendum þér prufu í pósti. Þú getur einnig litið við í verslun okkar eða haft samband við sölumann í síma 595-0500 595-0500 595-0500 595-0500 595-0500 595-0500 595-0500 595-0500 .
Askur Classic

Þessi askur er líflegur og fjölbreyttur frá náttúrunnar hendi. Askurinn kemur í 18cm borðum og með viðarlæsingu. Hafðu samband og við sendum þér prufu í pósti. Þú getur einnig litið við í verslun okkar eða haft samband við sölumann í síma 595-0500 595-0500 595-0500 595-0500 595-0500 595-0500 595-0500 595-0500 .
Athugaðu að fleiri tegundir frá Baltic Wood eru væntanlegar og við bjóðum einnig upp á sérpöntunarþjónustu á fjölda viðartegunda.
Við erum ávalt að skoða nýjustu framleiðendurnar hverju sinni og áður en langt um líður kynnum við til sögunnar leiðandi framleiðanda í krosslímdu parketi. Fylgustu með á heimasíðunni okkar fyrir nánari upplýsingar.





