Parket
Margt í umhverfi okkar er skapað til skammtímanota og endurnýjað eftir því sem straumar og stefnur breytast. Svo er ekki með viðargólf sem tekur margar aldir að þroskast úti í náttúrunni áður en unnt er að koma því inn á heimilin. Hugsa þarf vel um umhverfið til þess að hægt sé að breyta trjám í falleg viðargólf - gólf sem dást má að í áratugi.
Egill Árnason býður upp á mikið úrval af gegnheilu parketi, plankaparketi og fljótandi parketi.
Ef þú ætlar að leggja á heimilið þá skaltu skoða plankaparket og fljótandi parket, ef kröfurnar eru hins vega miklar þá gæti gegnheilt parket verið lausnin fyrir þig. Síðast en ekki síst þarftu að vita af harðparketinu sem hentar á gólf þar sem álagið er einstaklega mikið hvort sem um gæludýr eða almennan umgang er að ræða.
Ef velja á fljótandi parket sem er algengasta og mest selda parkettegundin í dag þá skaltu hafa eftirfarandi möguleiga í huga.
Grannur planki Breiður planki Tveggja stafa borð Þriggja stafa borð
Smelltu á myndirnar hér að neðan fyrir nánari upplýsingar eða farðu inn á heimasíður framúrskarandi parket framleiðenda sem við veljum fyrir einn kröfuharðasta markað í heimi, Ísland.




