Innihurðir
Hinar gullfallegu innihurðir frá Prum eru gott dæmi um þýskt hugvit. Þær eru yfirfelldar með samlokukörmum sem tryggja hljóðeinangrun og brunavörn sérstaklega vel. Margar útfærslur í öllum viðartegundum.
Það er að mörgu að huga áður en pantaðar eru innihurðir, máltakan þarf að vera nákvæm og liggja fyrir á undirrituðu blaði. Veggjarþykktin þarf að liggja fyrir, opnanir til hægri og vinstri þarf að ákveða og svo þarf að sjálfsögðu að ákveðja hvort að hurðin skuli verða án þröskulds, með þröskuldi eða með felliþröskuldi.
Athugaðu vel að ekki bjóða allir framleiðendur upp á jafn vandaðar hurðar, kynntu þér málið vel áður en þú fjárfestir í innihurðum, innihaldið skiptir nefnilega máli.
Hér má finna link inn á Þýska hágæðaframleiðandan Prüm

