skrifst-veggirogloft

Sagan

Egill Árnason var einn af framsæknustu athafnamönnunum hér á landi um miðbik síðustu aldar. Eftir að hafa stundað ýmis viðskipti á fjórða áratugnum hóf hann innflutning á gegnheilu parketi frá Junckers í Danmörku. Í beinu framhaldi var verslunarfyrirtækið Egill Árnason opinberlega stofnað þann 2. september árið 1934. Reksturinn fór upphaflega fram í heimahúsi stofnandans en fluttist þó fljótlega yfir í Hafnarhúsið við Tryggvagötu. Á löngum ferli hefur starfsemin haft aðsetur á ýmsum stöðum í borginni og má þar nefna Klapparstíg 46, hús Slippfélagsins og Skeifuna 3. Árið 1988 flutti fyrirtækið í núverandi og glæsilegt húsnæði að Ármúla 8.

Fyrirtækið varð strax frá stofnsetningu frumkvöðull á sviði almennrar lagerverslunar hér á landi en fram að þeim tíma höfðu einungis tíðkast sérpantanir erlendis frá. Samhliða parketinu var einnig flutt inn töluvert af þakjárni, kambstáli, girðingarefni sem og öðrum járn- og stálvörum. Þrátt fyrir mikið vöruúrval varð þróunin á þann veg að fyrirtækið tók að sérhæfa sig í innflutningi og sölu á vönduðum viðarvörum víðs vegar að úr heiminum. Árið 1954 setti Egill Árnason, fyrstur allra, á markað samlímt og krosslímt parket.

Egill Árnason lést árið 1973. Ári síðar var fyrirtækinu breytt í hlutafélag sem stjórnað var af eftirlifandi eiginkonu hans Ástu Norðmann og syni þeirra Má Egilssyni í Kosta Boda. Árið 1986 seldu þau síðan fyrirtækið Birgi Þórarinssyni og eiginkonu hans Dóru Sigurðardóttur. Með nýjum eigendum urðu ákveðnar áherslubreytingar hjá fyrirtækinu. Vöruúrvalið jókst til mikilla muna. Þar bættust við vegg- og loftaþiljur, gólfflísar, innihurðir ásamt ýmsum gerðum náttúrusteins. Eigendaskipti urðu á ný árið 2009 þegar feðgarnir Einar Gottskálksson og Ásgeir Einarsson tóku við rekstri fyrirtækisins og reka þeir það í dag.

Egill Árnason hf. tekur að sér að mynda mynda heildarlausnir í utanhússklæðningum fyrir stærri og smærri fyrirtæki. Í því samhengi má nefna höfuðstöðvar Olís, Skugga 101 Skúlagötu og höfuðstöðvar KGMB Borgartúni. Á sama hátt er einnig boðið upp á svipaðar lausnir í innanhússinnréttingum. Þar má nefna sem dæmi granítsteininn sem prýðir öll gólf í glæsilegri byggingu Perlunnar í Öskjuhlíðinni og kerfiveggir og hurðir í höfuðstöðvum KGMB Borgartúni. Sjáum einnig um veggi í höfuðstöðvum Price Waterhouse Coopers og gólfefni í Íslenskri erfðagreiningu. Egill Árnason klæðir einnig fjölmörg íþróttagólf á landinu.

Þess má geta að fyrirtækið gerir sér far um að eiga gott og náið samstarf við arkitekta og stærstu byggingaverktaka landsins með parket, hurðir og flísar. Reynt er að uppfylla allar þeirra kröfur með greinargóðri upplýsingaráðgjöf og aðstoð við efnisval.

Íslendingar gera miklar kröfur til híbýla sinna og því hefur Egill Árnason hf. ávallt lagt kapp á að vera með vandaða vöru og bestu fáanlegu merkin í hverjum vöruflokki fyrir sig. Auk þess er sérstaklega mikið lagt upp úr hagstæðu verði og þjónustulund og segir tryggð dyggra viðskiptavina til margra ára meira en mörg orð um slíkt.