fyrirtaekid

Fyrirtækið

Þjónusta hefur í fjölmörg ár verið eitt af aðalsmerkjum Egils Árnasonar. Það er okkar trú að þjónustan skilji á milli í samkeppni, það er þess vegna sem að við leggjum allt okkar í að veita þér framúrskarandi þjónustu.

Til þess að halda stöðu okkar sem brautryðjendur á þessu sviði höfum við kynnt fjölmargar nýjungar í þjónustu okkar undanfarin ár og við höldum því áfram

Af fjölmörgum þjónustuþáttum má nefna.


  • Útkallsþjónusta fyrir stóra viðskiptavini, verktaka og arkitekta
  • Stór lager með miklu úrvali.
  • Tilboðsútreikningar og ráðgjöf um nýtingu efni
  • Heilir pakkar lánaðir heim til þess að gefa betri mynd af gólfefninu.
  • Heimkeyrsla á vörum gegn vægu gjaldi.
  • Tökum til baka það efni sem að er ósagað og endurgreiðum.
  • Íslenskar notkunar og meðhöndlunarleiðbeiningar með fjölmörgum vörum.
  • Sérpöntunarþjónusta
  • Og margt fleira

Ef að þú verður var við eitthvað í þjónustu okkar sem ekki er í samræmi við þínar óskir þá hvetjum við þig til að hafa samband við framkvæmdastjóra á ae@egillarnason.is eða í síma 821-1414