flisar

Upplýsingar

Meðhöndlun á flísum og náttúrustein:

1. Grunnhreinsun (R-efni notuð)
2. Yfirborðsmeðhöndlun (S-efni notuð)
3. Viðhaldsefni (P-efni notuð)
4. Djúphreinsun (R-efni notuð)

Steinskífa

Til að auðvelda þrif er ráðlagt að hreinsa steininn vel áður hann er fúgaður og bera svo eina umferð á steininn af P23 efninu, blandað 1:1 út í vatn. Þetta á að auðvelda grunnhreinsun á steinskífunni eftir að búið er að fúga.

1. Grunnhreinsun
R55_reduced

R55 - öflugur hreinsir án saltsýru. Þekur; ca. 5-15m2 per lítra
R63_reduced

R63 - öflugur hreinsir með salsýru, leysir upp fúgu. Þekur; ca. 5-15m2 per lítra
Eftir þrif þarf skífan að þorna vel, stundum nokkra daga áður en meðhöndlun er haldið áfram.
Þegar R-63 er notað er æskilegt að þrífa steinskífuna vel með heitu vatni. Ef skífan er ekki þrifin vel með heitu vatni er hætt við því að saltsýran sitji eftir á yfirborðinu og þegar yfirborðsmeðhöndlun er lokið komi hún í ljós sem hvítar rákir.

2. Yfirborðsmeðhöndlun
S34_reduced

S-34 - mött áferð sem breytir litnum á skífuni minnst.  Þekur ca. 5-15m2 per lítra
S35_reduced

S-35 - hálf mött áferð, skerpir örlítið á litnum á skífunni. Þekur ca. 5-15m2 per lítra
S37_reduced

S-37 - glans áferð gefur skífunni glansandi áferð, hentar vel til meðhöndlunar á grófri skífu eins og t.d. Peacock. Þekur ca. 5-15m2 per lítra

Best er að nota; gólf-pensil, svamp eða mjúka tusku, þegar efnið er borið á. Athyli skal vakin á því að bera yfirborðsefnið jafnt á steinskífuna, og ráðlagðar eru 2 umferðir.


3. Viðhaldsefni
P24_reduced

P-24 - Fljótandi náttúrusápa, dagleg þrif, setjið reglulega út í vatnið (25-50ml/10 lítrar af vatni)
P23_reduced

P-23 - Glans bjargvættur, setjið reglulega út í vatnið (mánaðarlega ca. 100-200ml/10 lítrar af vatni)

4. Djúphreinsun
R55_reduced

R-55 - hreinsar í burtu skít og drullu                                                                                                            Þekur ca. 5-10m2/líterinn
R80

R-80 - hreinsar í burtu eldri yfirborðsmeðhöndlun                                                                                   Þekur ca.   3-5m2/líterinn
Þegar verið er að hreinsa eldri gólf er æskilegt að staðið sé vel að djúphreinsuninni, ef það er ekki gert er hætt við því að árangurinn verði ekki ásættanlegur þegar hann er endurmeðhöndlaður.

 

Postulín- og keramikflísar, án glerungs

1. Grunnhreinsun
R63 - Steinsteypu hreinsir, hreinsar í burtu steinsteypu og fúgu. Öflugur hreinsir sem inniheldur saltsýru.
R59 - Keramik hreinsir, inniheldur saltsýru
Eftir grunnhreinsun þurfa flísarnar að þorna vel, ekki er ráðlagt að halda áfram meðhöndlun fyrr en eftir 4-5 klst í fyrsta lagi, stundum þarf að bíða lengur.

2. Yfirborðsmeðhöndlun
Grundvallar undirstöðu efni:
S32W - Vatnsþynnt vörn - aukin verndun - lita breytingar á flísunum verða mjög litlar
S34     - Kísil vörn - auka verndun 
* Þessi efni hafa verið sett í prófun hjá matavælaiðnaðinum og staðfest hefur verið frá þeim að þau geti ekki valdið skaða eftir að efnin hafa þornað. Þess vegna er í góðu lagi að nota þessi efni á eldhúsborðplötur og á gólf í barnaherbergjum.  

3. Viðhald
Dagleg þrif
P24 -
Fljótandi sápa, setjið reglulega út í vatn (25-50ml/10 lítrar af vatni)

Iðulega mikil umferðarsvæði
P23 - Bón bjargvættur „engin skolun" bætið við út í hreint vatn (100-200ml/10 lítrar af vatni). Skúrið fyrst með P24 vel og skúrið svo einu sinni í viðbót með P23. 

4. Djúphreinsun
Eldri meðhöndlun hreinsuð í burtu
R57 - Öflugur keramikflísahreinsir, hreinsar í burtu óhreinindi (skít og drullu)
R54 - Öflugari hreinsir en R57, hreinsar í burtu gamla bónhúð 
Æskilegt er að þrífa steininn mjög vel við djúphreinsun til þess að ásætanlegur árangur náist þegar flísarnar eru endurmeðhöndlaðar.